Ég hef ekki bloggað endalaust lengi en ákvað
að bæta aðeins úr því. Núna er ég flutt til Reykjavíkur, borg óttans. Bý í
æðislegri íbúð og er í Fjölbrautaskólanum við Ármúla sem er alveg ágætis skóli,
mér finnst reyndar það allra besta við hann vera að það er boðið upp á söngnám.
Ég er semsagt að læra söng og fæ fyrir það eina einingu, 30 mínútur á viku mér
að kostnaðarlausu hjá söngkennara. Þetta er frábært, er að syngja mest íslensk
lög en líka ítalska aríu. Annars er bara gott að frétta af mér sambúðin gengur ágætlega
hjá okkur öllum saman þannig að íbúðin er almennt gestum hæfandi svo það má
alltaf heyra í manni þegar að fólk kemur til borg óttans.
Framtíðarplön eru í óvissu langar að skemmta mér
og skoða heiminn áður en alvaran tekur við en efað peningurinn manns er einskis
virði gerir maður lítið með honum í öðrum löndum. Langar afskaplega til að fara
til Ástralíu og vinna á búgarði, vinna með kindur, kýr og nota hesta til þess,
er það ekki bara draumur í dós. Langar í bakpokaferðalag um Evrópu sjá heiminn,
gera eitthvað. Langar í Söngháskólann í Þýskalandi sem kennarinn minn segist
geta mælt með mér í. Afskaplega langar mann margt.
En já hér ríkir kreppa, og ég hleypi bara
frænkum í hárið á mér á næstunni held ég hafi aldrei orðið fyrir jafn miklum
vonbrigðum og núna þegar að ég lét klippa á mér toppinn.
Kringlukast um helgina, er maður ekki að spara
svo þegar að maður fær þetta allt svona ódýrt þótt maður þurfi þetta ekki?
Langar í norðlensku sveitina, get engan vegin
skilið að þetta gangi allt sinn vanagang án mín til að skipta mér af. Langar á
hestbak.
En nóg í bili